Þannig er mál með vexti að í síðustu viku var ég að velta fyrir mér hvort ég ætlaði virkilega að hafa gestaherbergið tómt í allan vetur. Ég var búin að kaupa plastkassa fyrir geymsludótið og þar með tæma alla pappakassa, koma þessu fyrir úti í skúr í nýju hillunum svo gestaherbergið var þess vegna galtómt. Þannig hefur það verið í viku. Það var yfirdrifið nógu langur tími fyrir hina óþolinmóðu hússtýru! Á föstudag skellti ég mér í húsgagnaleiðangur og keypti rúm og tvær kommóður. Voila! Gestaherbergið er klárt! Hér sjáið þið svo árangurinn:
Þetta hlýtur að vera nógu stórt fyrir ykkur, mamma og pabbi - er það ekki??
Er mjög ánægð með þessar kommóður (sem ég er þegar búin að fylla) - þess má geta að á efstu skúffurnar er hægt að setja mismunandi lit á plöturnar fyrir innan - er að spá í að skella eðalgrænu þarna við tækifæri, nú eða rauða litnum! Gestir sem koma í heimsókn og nota herbergið mega svo velja litina sjálfir :)
Ég hef fengið nokkra tölvupósta frá fólki sem vill endilega fá að vita heimilsfangið hjá mér. Það er auðvitað ekkert leyndarmál - hér kemur það:
Íris Kristjánsdóttir
#26 3701 4th Avenue West
Prince Albert, SK, S6W 0A3
Canada
Síðustu vikur hafa verið stórskemmtilegar bæði í lífi og starfi. Nóg að gera á aðventunni, svolítið öðruvísi erill en heima en engu að síður yndislegur. Fjölmargir eru farnir að skreyta húsin sín, rétt eins og á Íslandi - ég sendi ykkur eina mynd til gamans af mjög svo skreyttu húsi nokkuð nálægt kirkjunni minni. Minnir svolítið á hús Griswold fjölskyldunnar frægu. Gleðilega aðventu, kæru vinir!
Vantar kannski "extreme close up" af þessu en þið látið bara ímyndunaraflið njóta sín :)
Mikið er orðið flott hjá þér!!!
ReplyDeleteEkki lengi að þessu öllu!
Til hamingju mín kæra.
Nú bíð ég bara eftir að sjá hjól eftir jól ;O)
Híhíhí
Hehe - hjólið kemur vonandi von bráðar! By the way - herbergið er líka tilbúið fyrir þig, mín kæra - og bleiki liturinn í skúffurnar væri auðvitað fullkomið val hjá þér! hehe - vertu velkomin hvenær sem þér hentar :)
DeleteHehe - hjólið kemur vonandi von bráðar! By the way - herbergið er líka tilbúið fyrir þig, mín kæra - og bleiki liturinn í skúffurnar væri auðvitað fullkomið val hjá þér! hehe - vertu velkomin hvenær sem þér hentar :)
DeleteTakk mín kæra!
DeleteAldrei að vita nema ma'r banki upp á einhvern daginn ;O) B.T.W. ég verð í henni Ameríku um jólin...Florida með Hómari og co....svo við verðum á svipuðu tímabelti ;O)